Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
20. júní 2007 14:20

Verðbreytingar á Norðurlandi eystra

Verðlagseftirlit ASÍ hefur á undanförnum mánuðum fylgst náið með verðlagi í matvöruverslunum um land allt til þess að meta hvernig lækkanir á virðisaukaskatti og vörugjöldum þann 1. mars sl. skila sér út í verðlag til neytenda.

Nú eru birtar niðurstöður úr umfangsmiklum verðmælingum í verslunum á Norðurlandi eystra; frá Ólafsfirði að Þórshöfn, ásamt áður birtum niðurstöðum fyrir þær verslunarkeðjur sem starfrækja verslanir á svæðinu.  Verðlagseftirlitið hóf verðmælingar sínar í desembermánuði 2006 til þess að unnt væri að fylgjast með verðþróun í aðdraganda breytinganna. Á myndinni hér að neðan má sjá verðbreytingar í verslunum, annars vegar á tímabilinu frá desember 2006 til febrúar 2007, og hins vegar á milli febrúar og mars 2007 þegar virðisaukaskattur og vörugjöld voru lækkuð.



Verðbreytingar í verslunum á Norðurlandi eystra voru á bilinu 0,2% lækkun til 4,3% hækkun milli desember og febrúar. Mest verðhækkun, 4,3%, var í 10-11 sem starfrækir verslanir á Akureyri en verð í verslunum Samkaupa-Úrvals á svæðinu lækkaði um 0,2% á sama tíma. Verð lækkaði á bilinu 5,6% til 7,7% milli verðmælinga í febrúar og marsmánuði. Mesta verðlækkun var í Hagkaupum, 7,7% og Bónus 7,6%, sem starfrækja verslanir á Akureyri, og í Kaskó, 7,4% sem rekur verslun á Húsavík. Minnsta verðlækkun mældist eftir breytingarnar í verslunum Samkaupa-Strax, 5,6% og Samkaupa-Úrvals, 5,9%.

Sjá nánari umfjöllun ásamt með töflum.



Til baka


Fréttalisti


Brúttólaun

Með heitinu brúttólaun er átt við heildarlaun...