Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
13. júní 2007 09:02

Atvinnuástandið í maí

Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun voru að meðaltali 1.759 manns skráðir atvinnulausir í maí sl. Þetta svarar til um 1,1% atvinnuleysis sem er jafn hátt hlutfall og í síðasta mánuði en nokkuð minna en á sama tíma í fyrra.

Laus störf hjá vinnumiðlunum í lok maí voru 610 eða 50 fleiri heldur en í síðasta mánuði en um 43 færri en á sama tíma í fyrra. Alla jafnan batnar atvinnuástandið á sumrin og því eru atvinnuhorfur góðar a.m.k. fram á haust.

Nýskráningar starfsmanna frá nýjum ríkjum ESB voru 696 í maí. Auk þess voru gefin út 47 ný atvinnuleyfi til íbúa utan ESB. Samtals var því tilkynnt um 743 nýja erlenda starfsmenn samanborið við 308 í síðasta mánuði og 332 á sama tíma í fyrra. Þessi aukning er m.a. vegna þess að Vinnumálastofnun sendi yfir 100 fyrirækjum bréf með áminningu vegna óskráðs erlends vinnuafls.

Nánari greining

Sé rýnt nánar í tölur Vinnumálastofnunar sést að atvinnulausum hefur fækkað úr 2.062 í 1.759 manns á síðustu 12 mánuðum eða um 303 manns.

Þeim fækkaði í öllum landshlutum nema á Suðurnesjum, Suðurlandi og Vesturlandi. Atvinnuástandið virðist vera einna verst á Suðurnesjum. Þarvoru 252 manns á atvinnuleysisskrá í maí s.l., 90 karlar og 162 konur. Þetta svarar til um 2,5% staðbundins atvinnuleysis.

Atvinnulausum konum á landinu fækkaði meira en atvinnulausum körlum á tímabilinu þó svo að sú þróun hafi reyndar snúist við í síðasta mánuði. Öfugt við aðra aldurshópa fjölgaði atvinnulausum í yngsta aldurshópnum (16-24 ára) milli mánaða. Það kann að stafa af því að skólafólk hefur verið að koma inn á markaðinn og ekki allt fengið vinnu samstundis.

 



Til baka


Fréttalisti


Aðildarskylda

Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins mælir fyrir um bann við...