12. júní 2007 11:11
Verðbólga mældist 4% í júní og hækkaði vísitala neysluverðs um 0,5% frá því í maímánuði. Mest áhrif til hækkunar á vísitölunni nú hefur hækkun á kostnaði vegna íbúðarhúsnæðis sem hækkaði um 1,9% milli mánaða og mikil verðhækkun á bensíni og díselolíu sem hækkaði um 3,2% frá fyrra mánuði.
Þá vekur athygli að þrátt fyrir að gengi íslensku krónunnar hafi styrkst mikið það sem af er árinu hefur það haft lítil áhrif á verð innfluttra vara. Verð á nýjum bílum og varahlutum hefur hækkað lítillega það sem af er árinu. Innfluttar vörur aðrar en matvörur, bílar og bensín hafa hækkað um 4,6% frá því í upphafi árs en gengi krónunnar hefur bein áhrif á innkaupsverð flestra innfluttra vara. Verð á innfluttum mat- og drykkjarvörum hefur lækkað um 8,1% frá því í janúar en þar kemur til lækkun á virðisaukaskatti og vörugjöldum sem áætlað var að mundi lækka verð þessara vara um 8,7%, áhrifin af sterkri krónu hefðu því átt að lækka verð þessara vara enn frekar.
Verð á veitingaþjónustu, sem var einn þeirra liða sem lækkun á virðisaukaskatti þann 1. mars sl. náði til, hækkaði annan mánuðinn í röð, nú um ríflega 1%. Ljóst er að lækkun á virðisaukaskatti sem Hagstofan áætlaði að ætti að lækka verð á veitingaþjónustu um tæplega 9% hefur alls ekki skilað sér út í verðlag til neytenda. Frá því í febrúar hefur veitingarliður vístölunnar einungis lækkað um ríflega 3%.
Samkvæmt fastskattavísitölu neysluverðs, sem lýsir breytingum á vísitölu neysluverðs hefði ekki komið til breytinga á virðisaukaskatti þann 1. mars sl., mældist verðbólga 5,8% í júní sem sýnir að undirliggjandi verðbólga er enn umtalsverð.
Til baka