Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
11. júní 2007 14:17

Brautskráning nemenda frá Félagsmálaskóla alþýðu

Brautskráning nemenda út rekstrar- og stjórnunarnámi Símenntunar Háskólans á Akureyri fór fram þann 8. júní í Listasafni ASÍ. Að þessu sinni útskrifuðust 5 nemendur.  Þeir eru: Bryndís Kjartansdóttir, Hákon Hákonarson, Kristín Anna Kristjánsdóttir, Lilja Kristín Sæmundsdóttir og Valborg Kjærbech Óskarsdóttir. 

Á vegum Félagsmálaskóla alþýðu er í boði háskólanám fyrir forystu og starfsmenn stéttarfélaga í samstarfi við Símenntun Háskólans á Akureyri. Markmið námsins er að gera félögin öflugri í opinberri umræðu, beittari í kjarabaráttunni og um leið að efla þátttakendur í starfi og leik. 

Námið er skipulagt með þarfir forystu og starfsmanna stéttarfélaga í huga bæði hvað varðar námgreinar og skipulag. Námsefnið byggir á því starfi sem forystufólk og starfsmenn eru að sinna.   Kennsla fer fram á vinnutíma og eru kennsluhættir og aðferðir sniðnar að þörfum fólks sem vinnur samhliða námi.

Á hverri önn eru kenndar þrjár námsgreinar og er hver námsgrein kennd í samfellt í fjórar vikur.  Nemendur gera verkefni og taka próf í hverri námsgrein og er henni þá lokið áður en sú næsta hefst.

Samstarfið við Símenntun Háskólans á Akureyri hófst haustið 2004 og er þetta þriðji hópurinn sem er að útskrifast.

Útskriftarhópur 



Til baka


Fréttalisti


Félagafrelsi

Með félagafrelsi er átt við rétt manna...