Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
11. júní 2007 13:54

Niðurstöður verðmælinga á Norðurlandi vestra

Verðlagseftirlit ASÍ hefur undanfarna mánuði haldi úti verðmælingum í matvöruverslunum á öllu landinu og fylgst náið með verðþróun á mat- og drykkjarvörum til að leggja mat á hvernig lækkanir á virðisaukaskatti og vörugjöldum skila sér í vöruverði til neytenda. Nú eru birtar niðurstöður úr verðmælingum í verslunum á Norðurlandi vestra frá Blönduósi að Siglufirði. Verðmælingar hófust í verslunum í desembermánuði 2006 til þess að unnt væri að meta verðþróun í aðdraganda breytinganna. Niðurstöðurnar sem hér eru birtar sýna annars vegar verðbreytingar í verslunum á tímabilinu frá desember 2006 til febrúar 2007 og hins vegar milli febrúar og mars 2007 þegar virðisaukaskattur og vörugjöld voru lækkuð.

Verð hækkaði um 1,5% til 2,6% í verslunum á Norðurlandi vestra milli mælinga í desember og febrúar en lækkaði um 5,8% til 8,2% milli mælinga í ferbrúar og mars. Niðurstöðurnar eru svipaðar þeim sem birtar hafa verið úr öðrum landshlutum og sýna að verðlækkun milli mælinga í febrúar og mars reyndist á bilinu 6% til 7% hjá flestum smásöluaðilum.


Hér má lesa skjalið í heild

Óheimilt er að vitna í niðurstöðurnar í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ



Til baka


Fréttalisti


Dagvinna

Vinna á dagvinnutímabili, eins og það tímabil...