Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
06. júní 2007 11:17

Norrænt þing verkafólks í iðnaði haldið í Reykjavík 15. júní n.k.

Þann 15. desember s.l. runnu norræna málmiðnaðarsambandið (Nordisk Metall) og norræna iðnaðarsambandið (NIF) saman eitt norrænt starfsgreinasamband, IN, (Industrianställda i Norden).

Aðildarsambönd IN eru 22, þ.á.m.  Starfsgreinasamband Íslands og Samiðn. Félagsmenn eru alls um 1,2 milljónir. Formaður IN er Kjell Björndalen, FF Noregi og framkvæmdastjóri er Jyrki Raina.

Skúla Thoroddsen og Vignir Eyþórsson voru tilnefndir í stjórn IN til 2ja ára á vegum SGS og Samiðnar.

Fyrsta þing sambandsins verður haldið í 15. júní á Radisson SAS hótel SAGA í Reykjavík.

Í fréttatilkynningu frá IN á stofnfundi segir m.a. ,,Sameiningin endurspeglar viðbrögð við hnattvæðingu atvinnulífsins sem hefur kallað á aukið samstarf launþegahreyfingarinnar á Norðurlöndum. Með sameiningunni vill Norræna verkalýðshreyfingin sameina krafta sína til aukinna áhrifa á Norðurlöndum, í Evrópu og hnattrænt. Norræna verkalýðshreyfingin leggur áherslu á félagslegt öryggi velferðarkerfisins,  hefðir lýðræðis, jöfnuð og jafnræði á vinnumarkaði þar sem unnið er eftir þróuðu kerfi  kjarasamninga bæði heima og að heiman. ,,Norræna módelið” á vinnumarkaði hefur vakið athygli og áhuga í mörgum löndum og á vettvangi Evrópusambandsins.”

Auk hefðbundinna þingstarfa í Reykjavík verður sérstaklega fjallað um framtíðarsýn hinnar alþjóðlegu verkalýðshreyfingar í hnattrænu efnahagskerfi.

Sjá nánar á heimasíðu IN.



Til baka


Fréttalisti


Fæðingarorlof

er samkvæmt lögum allt að þriggja mánaða tímabil...