05. júní 2007 09:25
Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar auglýsir eftir umsóknum um styrki til einstaklinga til að sækja námskeið eða afla sér með öðrum hætti þekkingar á verkalýðshreyfingunni og málefnum launafólks, innanlands eða erlendis.
Um er að ræða styrki sem ætlaðir eru til að greiða að hluta til eða öllu leyti skráningargjöld, ferða- og/eða dvalarkostnað. Styrkirnir eru ætlaðir félagsmönnum í stéttarfélögum innan Alþýðusambands Íslands. Hámarksstyrkur er kr. 100.000.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst nk. Umsóknir um styrkina verða afgreiddar 1. september nk.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar er hægt að fá hér.
Til baka