Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
04. júní 2007 14:24

Útskrift hjá Félagsmálaskóla alþýðu

Á vegum Félagsmálaskóla alþýðu er í boði háskólanám fyrir forystu og starfsmenn stéttarfélaga í samstarfi við Símenntun Háskólans á Akureyri. Markmið námsins er að gera félögin öflugri í opinberri umræðu, beittari í kjarabaráttunni og um leið að efla þátttakendur í starfi og leik.

Námið er skipulagt með þarfir forystu og starfsmanna stéttarfélaga í huga bæði hvað varðar námgreinar og skipulag. Námsefnið byggir á því starfi sem forystufólk og starfsmenn eru að sinna. Kennsla fer fram á vinnutíma og eru kennsluhættir og aðferðir sniðnar að þörfum fólks sem vinnur samhliða námi.

Á hverri önn eru kenndar þrjár námsgreinar og er hver námsgrein kennd í samfellt í fjórar vikur. Nemendur gera verkefni og taka próf í hverri námsgrein og er henni þá lokið áður en sú næsta hefst.

Samstarfið við Símenntun Háskólans á Akureyri hófst haustið 2004 og er þetta þriðji hópurinn sem útskrifast.

 



Til baka


Fréttalisti


Fæðingarorlof

er samkvæmt lögum allt að þriggja mánaða tímabil...