04. júní 2007 11:07
Niðurstöður verðmælinga á Vestfjörðum
Verðlagseftirlit ASÍ hefur á undanförum mánuðum fylgst náið með verðþróun á mat- og drykkjarvörum í matvöruverslunum um land allt til þess að meta hvernig lækkanir á virðisaukaskatti og vörugjöldum þann 1. mars sl. skila sér út í verðlag til neytenda. Nú eru birtar niðurstöður úr verðmælingum í verslunum á Vestfjörðum ásamt þeim verslunarkeðjum sem starfrækja verslanir þar. Verðmælingar hófust í verslunum í desembermánuði 2006 til þess að unnt væri að meta verðþróun í aðdraganda breytinganna. Niðurstöðurnar sem hér eru birtar sýna annars vegar verðbreytingar í verslunum á tímabilinu frá desember 2006 til febrúar 2007 og hins vegar milli febrúar og mars 2007 þegar virðisaukaskattur og vörugjöld voru lækkuð.
Verðbreytingar í verslunum á Vestfjörðum voru á bilinu 0,6% lækkun til 2% hækkun milli mælinga í desember og febrúar en verð lækkaði um 5,3% til 7,8% milli mælinga í ferbrúar og mars. Þessar niðurstöður eru í góðu samræmi við aðrar niðurstöður sem verðlagseftirlitið hefur birt sem sýna að verð hjá flestum aðilum lækkaði á bilinu 6%-7% á milli febrúar og mars. Þetta er einnig í góðu samræmi við mælingar Hagstofu Íslands á matar- og drykkjarlið vísitölu neysluverðs á tímabilinu.
Hér má lesa greinina í heild.
Til baka