Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
01. júní 2007 10:02

Kárahnjúkar - yfirlýsing

Vegna ummæla Ómars Valdimarssonar, talsmanns Impregilo, í fjölmiðlum:

Við framkvæmdir á Kárahnjúkum hafa komið upp mörg erfið mál er snerta mannleg samskipti og ásakanir um hroka og/eða kynferðislega áreitni  eru ekki nýjar af nálinni. Haustið 2005 greip verkalýðshreyfingin m.a. til þess að fá kínverskumælandi trúnaðarmann til að koma reglulega í vinnubúðirnar og hefur hann unnið traust kínversku starfsmannanna og fyrir hans tilstilli hefur m.a. náðst verulegur árangur í að bæta vinnuumhverfi þeirra.

Sama haust héldum við fund með yfirmönnum Impregila vegna þráláts orðróms um kynferðislega áreitni yfirmanna á svæðinu við starfsstúlkur þar. Við tókum skýrt fram á þeim fundi að við hefðum sjálfir ekki aðstæður né kunnáttu til að rannsaka ásakanirnar – heldur sæjum við vart aðra leið en að kalla til sérfræðinga og nefndum þar til m.a. starfsfólk Stígamóta. Á þeim fundi var okkur lofað því að gert yrði sérstakt kynningarátak meðal yfirmanna á svæðinu og að fyrirtækið myndi grípa til nauðsynlegra aðgerða. Síðan þá höfum við ekki heyrt ásakanir um áreitni af þessu tagi fyrr en í fréttum síðustu daga.

Á svæðinu starfar fólk af tugum þjóðerna og við erfiðar aðstæður. Þarna hefur oft komið til deilna milli fólks af misjöfnu þjóðerni eða  litarhætti . Við þekkjum einnig til dæma um fyrirvaralausan brottrekstur úr starfi og að viðkomandi hafi verið sendir samdægurs úr landi. Í hvert sinn sem við verðum áskynja um slíkt reynum við að stöðva för fólks á meðan réttarstaða þess er könnuð.

Það er ljóst í okkar huga að það má margt betur fara á framkvæmdasvæðinu þó að tekist hafi að færa ýmsa hluti til betri vegar. Það vekur hins vegar furðu okkar að talsmaður Impregilo vísi á bug ásökunum um vandamál  - vandamálin eru þarna og hafa verið. Hversu mikil þau eru og  hvort og hvernig hefur verið reynt að leysa þau er hins vegar mál sem má skoða nánar. Við vekjum líka athygli á því að við þessar framkvæmdir starfa fleiri fyrirtæki en Impregilo og að vandamál í mannlegum samskiptum eru ekki einskorðuð við það fyrirtæki. Í því sambandi má nefna að á síðasta ári vannst í Héraðsdómi Austurlands mál sem AFL höfðaði fyrir hönd 14 félagsmanna sinna gegn íslensku starfsmannaleigunni 2b, sem síðan hefur verið lýst gjaldþrota.

Oddur Friðriksson, yfirtrúnaðarmaður        Sverrir Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs



Til baka