23. maí 2007 14:46
Aðallögsögumaður Evrópudómstólsins gaf álit sitt í svokallaða sænska Laval máli í morgun.
Niðurstaða hans felur í stuttu máli í sér fullan stuðning við málatilbúnað sænsku verkalýðshreyfingarinnar og þá megin skoðun verkalýðshreyfingarinnar að rétturinn til þess að gera kjarasamninga, í þeim tilvikum þegar kjarasamningar hafa ekki almennt gildi, og fylgja gerð þeirra eftir með verkföllum og öðrum lögmætum þvingunaraðgerðum að landsrétti er réttur sem byggi á landslögum hvers aðildarríkis Evrópusambandsins.
Hann tekur sérstaklega fram að þetta eigi við um aðgerðir til varnar almennum hagsmunum launafólks eins og vernd launafólks og til þess að vinna gegn félagslegum undirboðum. Verði þetta álit lögsögumannsins lagt til grundvallar dómi Evrópudómstólsins hafa línur mjög skýrst á þessu sviði.
Þessi niðurstaða er jafnframt í samræmi við þá umsögn sem íslenska ríkið gaf í málinu að höfðu samráði við ASÍ og SA.
Tillaga aðallögsögumannsins frá í morgun.
Umsögn íslenskra stjórnvalda
Til baka