Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
21. maí 2007 11:03

11. þing ETUC sett í morgun

11. þing ETUC, Evrópusamtaka verkalýðsfélaga var sett í morgun í Sevilla á Spáni. Yfirskrift þingsins er ,,Í sókn; fyrir félagslega Evrópu, samstöðu og sjálfbærni. Við setningu þingsins fluttu gestir ávörp, þar á meðal  José Manuel Barroso, forseti Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Ræddi hann m.a. um mikilvægt hlutverk evrópskrar verkalýðshreyfingar í þeim miklu breytingum sem Evrópa stendur frammi fyrir á tímum hnattvæðingar og aukinnar alþjóðlegrar samkeppni. Barroso lagði áherslu ámarkmiðið væri ekki að hverfa frá því velferðarkefi sem byggt hefur verið upp í Evrópu, heldur verja það og styrkja þann félagslega grundvöll og samstöðu sem Evrópa byggir á.

Cándido Méndez Radriguez, forseti ETUC undirstrikaði í setningarræðu sinni að meginverkefni þingsins væri að snúa varnarbaráttu undanfarinna ára í nýja sókn fyrir félagslegri Evrópu með samstöðu og sjálfbærni að vopni.

Fulltrúar ASÍ á þinginu eru þau Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, varaforseti ASÍ, Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ og Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ. Þingið stendur til 24. maí n.k.



Til baka


Fréttalisti


Aukafélagar

eru jafnan taldir þeir sem ekki hafa formlega ...