15. maí 2007 15:27
Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun var skráð atvinnuleysi í apríl 1,1%, sem er heldur minna en bæði í síðasta mánuði og fyrir ári síðan. Lausum störfum fjölgaði í lok apríl frá því í lok mars úr 414 í 560. Líta má á þetta sem vísbendingu um að atvinnuástandið muni almennt halda áfram að vera gott á næstunni.
Atvinnulausum í landinu fækkaði í apríl um 68 frá fyrra mánuði. Á höfuðborgar-svæðinu fækkaði atvinnulausum um 48 og á landsbyggðinni um 20. Síðastliðna 12 mánuði dró úr fjölda atvinnulausra alls staðar nema á Suðurnesjum, Suðurlandi og Vesturlandi. Miðað við tölur Vinnumálastofnunar virðist atvinnuástandið núna vera einna verst á Suðurnesjum og Norðurlandi eystra.
Verulega virðist vera að draga úr komu erlendra starfsmanna til landsins. Nýskráningar frá nýjum ríkjum evrópska efnahagssvæðisins voru 283 í apríl. Auk þess voru gefin út 25 ný atvinnuleyfi til íbúa utan ESB. Samtals voru því veitt leyfi til /skráðir 308 erlendir starfsmenn samanborið við 682 í apríl í fyrra.

Smellið hér til þess að lesa greinina í heild
Til baka