Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
15. maí 2007 10:22

Drög að nýrri atvinnustefnu

Atvinnumálanefnd ASÍ bauð til vorfundar föstudaginn 11. maí til að kynna tillögur sínar um nýja atvinnustefnu Alþýðusambandsins. Góð mæting var á fundinn en á hann mættu ásamt nefndarmönnum forsvarsmenn aðildarsamtaka ASÍ.

Forseti ASÍ Grétar Þorsteinsson sagðist í upphafi fundar vona að þrátt fyrir að ekki væru allir fullkomlega sáttir um allar tillögurnar þá gætu þær samt myndað grundvöll sem ASÍ gæti byggt stefnu sína í atvinnumálum á til næstu framtíðar. Tillögurnar voru settar fram í þremur liðum: grunnstoðir atvinnulífsins, nýting og vernd náttúruauðlinda og sköpun þekkingar. 

Á fundinum var mikil og góð umræða og komu fram ábendingar um ýmsa þætti atvinnustefnunnar. Miðvikudaginn 16. maíverða tillögurnar teknar til afgreiðslu á miðstjórnarfundi ASÍ.



Til baka


Fréttalisti


Atvinnuleyfi

eru leyfi sem gefin eru út til atvinnurekanda...