14. maí 2007 15:35
ITUC (Alþjóðasamband verkalýðsfélaga)og FIDH (Alþjóðamannréttindasambandið) hafa fordæmt ákvörðun Kínverja um að ganga út af sérfræðingafundi Kína og Evrópusambandsins um mannréttindamál, sem halda átti 10-11. maí s.l. í Berlín.
Aðstoðarframkvæmdarstjóri þeirrar deildar kínverska utanríkisráðuneytisins sem fjallar um alþjóðstofnanir, Dr. Shen Yonxiang, skipaði öllu fylgdarliði sínu að yfirgefa fundinn um það bil þegar hann var að hefjast. Það gerði hann til að mótmæla ákvörðun Þýskalands sem nú er í forystu Ráðherraráðsins um að útiloka ekki sérfræðinga tveggja óháðra samtak (NGO’s)frá þátttöku í fundinum. Ekkert varð því úr fundinum.
Fundinum var ætlað að ganga frá tilmælum varðandi réttinn til sanngjarnra réttarhalda og um réttindi launafólks og átti því að vera lokið fyrir upphaf “EU-China Human Rights Dialogue” sem fara átti fram þann 15. maí í Berlín. Ráðstefnunni sem sækja áttu embættismenn, vísindamenn og sérfræðingar í mannréttindamálum frá Kína, Evrópusambandinu og aðildarríkum þess var aflýst vegna þessarar ákvörðunar Kínverja.
FIDH og ITUC sem áttu bæði sæti á fundinum, hafa lýst velþóknun sinni á og fullum stuðningi við þá ákvörðun Ráðherraráðs og Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins að halda til streitu ákvörðun sinni um að bjóða til ráðstefnunnar þessum tveimur óháðu mannréttindasamstökum. Með henni sýni Evrópusambandið að tjáningarfrelsið er ekki eitthvað sem hægt sé að semja sig frá undir þrýstingi. Þau telja jafnframt að framferði Kína vinni gegn megintilgangi Evrópusambandsins og þeirrar samræðu um mannréttindi sem fram átti að fara milli aðila og sem Kína hafði skuldbundið sig til þess að taka þátt í til þess að bæta ástand mannréttindamála í Kína. ITUC og FIHD telja að ákvörðun Kínverja um að ganga út af ráðstefnunni kalli á ítarlegt mat af hálfu Evrópusambandsins og aðildarríkjanna á tilgangi þess að halda áfram samræðu við Kína um mannréttindamál.
Til baka