Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
14. maí 2007 15:11

Verðbreytingar á Vesturlandi

Verðlagseftirlit ASÍ hefur á undanförunum mánuðum fylgst náið með því hvernig lækkanir á virðisaukaskatti og vörugjöldum þann 1. mars sl.hafa skilað sér út í verðlag til neytenda í verslunum um land allt. Hér á eftir má sjá niðurstöður úr viðamiklum verðmælingum í verslunum á Vesturlandi, frá Akranesi að Hellissandi ásamt áður birtum niðurstöðum fyrir þær verslunarkeðjur sem starfrækja verslanir á svæðinu, alls 12 verslanir. Til þess að fylgjast með verðþróun í verslunum fyrir breytinguna hóf verðlagseftirlitið verðmælingar í desember 2006. Á neðangreindri mynd eru sýndar verðbreytingar í verslunum annars vegar á tímabilinu frá desember 2006 til febrúar 2007 og hins vegar milli febrúar og mars 2007 þegar virðisaukaskattur og vörugjöld voru lækkuð. Verðbreytingar í verslunum á Vesturlandi voru á bilinu 0,6% lækkun til 4,9% hækkun milli mælinga í desember og febrúar. Verð lækkaði um 3,6% - 11% milli mælinga í febrúar og mars en í flestum verslunum lækkaði verð um 6% - 7% á því tímabili. Ljóst er af þessum niðurstöðum að verslanir hafa staðið sig nokkuð mismunandi í að skila lækkun á virðisaukaskatti og vörugjöldum en líkt og fyrri niðurstöður verðlagseftirlitsins hafa sýnt skila flestir aðilar viðunandi lækkun til neytenda. Þetta er einnig í góðu samræmi við mælingar Hagstofu Íslands á matar- og drykkjarvörulið vísitölu neysluverðs á tímabilinu.

Verðbreytingar_V

Niðurstöður úr mælingum í öðrum landshlutum verða birtar á næstunni.

Smellið hér til þess að lesa greinina í heild



Til baka


Fréttalisti


Desemberuppbót

er eingreiðsla sem atvinnurekendum ber samkvæmt...