11. maí 2007 10:32
Verðbólga mældist 4,7% í maí og hækkaði vísitala neysluverðs um 0,82% frá því í apríl. Hækkunina nú má líkt og undanfarna mánuði rekja til hækkunar á markaðsverði húsnæðis sem hækkaði um 1% frá fyrra mánuði. Verð á mat- og drykkjarvörum hefur einnig talsverð áhrif til hækkunar en sá liður hækkaði um 1,3% milli mánaða. Þá hækkaði verð á bensíni og olíu um 3,1% frá því í aprílmánuði.
Samkvæmt fastskattavísitölu neysluverðs sem Hagstofa Íslands hefur reiknað út sl. mánuði mælist verðbólga 6,5 % á ársgrundvelli. Fastskattavísitalan lýsir breytingum á vísitölu neysluverðs hefði ekki komið til breytinga á virðisaukaskatti þann 1. mars sl. og gefur góða vísbendingu um þá undirliggjandi verðbólgu sem er í hagkerfinu. Ljóst er að þrátt fyrir að aðgerðir til lækkunar á virðisaukaskatti og vörugjöldum þann 1. mars sl. hafi lækkað vöruverð á ákveðnum vörum og þjónustu og lækkað verðbólgutölur tímabundið hafa þessar aðgerðir ekki áhrif á þá þætti sem eru undirliggjandi verðbólguvaldar. Þessar tölur benda síður en svo til þess að draga sé úr verðbólgu og gefa fullt tilefni til þess að hafa áfram áhyggjur af þróun verðlags.
Til baka