Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
04. maí 2007 16:31

Vel heppnuð námsstefna

Hvað vilt’upp á dekk?

Hátt á fjórða tug kvenna frá hinum ýmsu aðildarfélögum ASÍ komu saman á námsstefnu dagana 26.-28. apríl sl. sem haldin var á vegum fræðsludeildar ASÍ. Markmið námstefnunnar var að efla konur innan verkalýðshreyfingarinnar í jafnréttisbaráttunni og styrkja um leið tengslanet þeirra. Boðið var upp á einstaklega fjölbreytta og áhugaverða dagskrá þar sem fjallað var um jafnréttisbaráttuna frá hinum ýmsu sjónarhornum.

 Fyrst tók til máls Maríanna Traustadóttir jafnréttisfulltrúi ASÍ með umfjöllun um konur og verkalýðshreyfinguna. Þar kom hún meðal annars inn á mikilvægi þess að auka hlut kvenna í stjórnun og áhrifastöðum innan verkalýðshreyfingarinnar og samtökum tengdum þeim. Hún lagði áherslu á að setja yrði mælanlega markmið í þessu sambandi þannig að hægt yrði að mæla árlega með kerfisbundnum hætti þann árangur sem næðist. 

Næst steig í pontu Lilja Mósesdóttir prófessor í Háskólanum í Bifröst með fyrirlesturinn “Vinnumarkaður og kynjagleraugu”. Þar fjallaði hún um einkenni íslensks vinnumarkaðar og einkenni hins þekkingardrifna vinnumarkaðar sem felst m.a. í auknum hreyfanleika.

Auður Eir Vilhjálmsdóttir prestur hélt næst hjartnæma ræðu um konur, jafnrétti og trúmál og Amal Tamimi fræðslufulltrúi hjá Alþjóðahúsinu sagði frá hvaða réttindi og stöðu konur í íslamstrúarríkjum hafa. Næst steig á svið Margrét Pála Ólafsdóttir leikskólastjóri og þar á eftir Aðalheiður Héðinsdóttir eigandi Kaffitárs. Margrét Pála hélt kraftmikla ræðu um uppeldi stúlkna og drengja og kosti þess að bjóða upp á kynskiptan leikskóla og grunnskóla og Aðalheiður kenndi konum leiðir til þess að verða góður stjórnandi. Að lokum fjallaði Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hagfræðingur hjá ASÍ um kynbundinn launamun og kynnti hún þar m.a. könnun Starfsgreinasambandsins 2006 og könnun VR 2006 þar sem fram kom að karlar hefðu að jafnaði allt að 42% hærri heildarlaun en konur. Síðust tók til máls ein að helstu forystukonum verkalýðshreyfingarinnar Þórunn Sveinbjörnsdóttir hjá Eflingu. Hún hvatti konur m.a. til þess að halda ótrauðar áfram góðu starfi í jafnréttisbaráttunni og minnti á styrk samtakamáttarins.

 Í lok ráðstefnunnar voru haldnar málstofur og verkefnavinna. Sú vinna skilaði sér í áskorun sem lögð var fyrir miðstjórn ASÍ þann 3. maí. Miðstjórn tók vel í áskorunina og var ákveðið að skoða einstaka þætti henni betur.

 Það var samróma skoðun ráðstefnugesta að ráðstefnan hefði tekist með eindæmum vel og skilað bæði aukinni þekkingu og mikilli hvatningu til kvenna innan verkalýðshreyfingarinnar. Það var greinilegt að mikill áhugi er fyrir því að halda áfram að styrkja tengslanetið meðal annars með því að halda slíkar ráðstefnur sem oftast á næstu árum.

 Hér má skoða áskorun ráðstefnunnar.



Til baka


Fréttalisti


Gengislækkun

veldur því að erlendur gjaldeyrir verður dýrari í íslenskum...