03. maí 2007 14:51
Yfirskrift Vorskýrslu Hagdeildar ASÍ 2007 er Aukin misskipting í góðæri. Er með því verið að vísa til þess að þrátt fyrir mikla verðmætaaukningu síðustu ára hefur ójöfnuður aukist. Meginþema Vorskýrslunnar er ný spá um þróun helstu hagstærða fyrir árið í ár og næsta ár. Auk þess er fjallað um vaxandi ójöfnuð; skatta og tekjuskiptingu ásamt vaxandi skuldum heimilanna.
Hagspá 2007 og 2008
Spá Hagdeildar ASÍ um þróun helstu hagstærða gerir ekki ráð fyrir harðri lendingu hagkerfisins nú í lok stóriðjuframkvæmda. Það er þó áhyggjuefni að ekkert augljóst jafnvægi er í kortunum. Þó að hægi á hagkerfinu er ekki að sjá að viðskiptahallinn verði viðráðanlegur í náinni framtíð, vextir verða áfram háir og verðbólga óásættanlega mikil. Óvissa er mikil og lítið má út af bera til að hagkerfið þróist til verri vegar. Geta Seðlabankans til viðspyrnu er skert vegna hárra stýrivaxta.
Brýnasta verkefnið í hagstjórn nú er að koma á jafnvægi í þjóðarbúskapnum á ný.

Vaxandi ójöfnuður
Rannsókn ASÍ sýnir að ójöfnuður á Íslandi fór vaxandi á tímabilinu 1990-2005 vegna vaxandi fjármagnstekna og breytinga á skattkerfinu sem drógu úr tekjujöfnunarhlutverki þess með raunlækkun persónuafsláttar, afnámi hátekjuskatts og hlutfallslegri lækkun barnabóta. Ójöfnuður jókst meira í ráðstöfunartekjum en heildartekjum á tímabilinu og ljóst er að áhrif skatta- og bótakerfis hafa mikil áhrif á tekjuþróun einstakra hópa, sérstaklega eldri borgara og barnafólks.
Lífskjör að láni
Tekjur heimilanna duga ekki fyrir útgjöldum þeirra, skuldirnar hrannast upp og nema nú um 240% af ráðstöfunartekjum. Tekjurnar hafa vissulega aukist talsvert á liðnum árum en samt hefur hlutfall vaxtagreiðslna af ráðstöfunartekjum verið að hækka. Nauðsynlegt að horfast í augu við það að mikil skuldsetning íslenskra heimila svo og hækkandi byrði vaxtagreiðslna þýðir að áhætta þeirra vegna skulda hefur aukist. Þau eru orðin mjög viðkvæm fyrir verðbólgu svo og breytingum á vöxtum, tekjum og eignaverði.
Sjá skýrslu í heild sinni
Til baka