03. maí 2007 11:37

Laugardaginn 5. maí kl. 15.00 verður sýningin Frá einum til óendanleika opnuð í Listasafni ASÍ.
Það eru fimm norrænir textíllistamenn og eitt tónskáld sem eiga verk á sýningunni.
Listamennirnir verða viðstaddir opnunina.
Sýningin er farandsýning sem hóf göngu sína í Forum Box í Helsinki og var síðan sett upp í Listasafninu í Þrándheimi.
Listamennirnir eru allir í fremstu röð textíllistamanna á Norðurlöndum en efnistök þeirra eru afar ólík.
Marianne Mannsåker frá Noregi - klassískur gobelínvefnaði.
Það er þúsund ára hefð fyrir því að vefa myndir. Myndefni Marianne eru huglæg en vísa til hins hlutlæga, byggingalistar eða náttúru.
Listamaðurinn lýsir verkunum sem ímynduðum kortum, leynibréfum eða fjölradda söngbók.
Anna Þóra Karlsdóttir frá Íslandi - verk úr þæfðri ull
Í verkum Önnu Þóru má einnig finna vísanir til náttúrunnar. Frásgnir um himin og jörð, fólk og náttúru.
Þræðir drauma og ljóss binda verkin saman frá upphafi tímans til eilífðar.
Guðrún Gunnarsdóttir frá Íslandi -málmþræðir
Listamaðurinn beinir athyglinni að hverning við umgöngumst náttúruna og tortímum henni.
Með hjálp þráðar og þrívíddarteikningar setur hún fegurð náttúrunnar í brennidepil.
Agneta Hobin frá Finnlandi - málmur
Agneta vefur úr málmi, þema verkanna er náttúran og ýmis náttúrufyrirbæri.
Undrun yfir stjörnunum sem eru í ljósára fjarlægð en virka samtímis svo nálægar.
Kristiina Wiherheimo, frá Finnlandi - hlutir
Beinir athyglinni að hinu smágerða sem hún greinir í mismunandi efnisgerðum og hlutum.
Þessar hugleiðingar tjáir hún í verkum sínum á þann hátt að nýtt líf og nýir heimar skapast.
Paola Livorsi frá Finnlandi- tónlist
Tónlistin er samin sérstaklega fyrir sýninguna. Hún byggir á verkum listamannanna og þeim ólíka efnivið sem þeir nota í verk sín.
Frumefnin eldur, jörð og vatn eru til staðar sem hljóðgervingar af yfirborði málms, trés, skinns og ullar.
Fjórða frumefnið, loft, er táknað með mannsröddinni.
Sýningin stendur til 27. maí
Listasafn ASÍ er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13.00-17.00
Aðgangur er ókeypis
Listasafn ASÍ Freyjugötu 41 101 Reykjavik.
s.511-5353 896-6559
listasi@centrum.is
www.asi.is
Til baka