02. maí 2007 11:34
Mennt - samstarfsvettvangur atvinnulífs og skóla heldur félagsfund um Nýjan framhaldsskóla 3. maí næstkomandi kl. 15:00-17:00 í hátíðarsal Háskóla Íslands. Á fundinum verður gerð grein fyrir helstu niðurstöðum og áherslum í skýrslu starfsnámsnefndar um Nýjan framhaldsskóla og stöðu málsins. Þá munu fulltrúar aðila vinnumarkaðarins og menntastofnana sem eiga aðild að Mennt gera grein fyrir sínum viðhorfum og áherslum. Fulltrúar stjórnmálaflokkanna gera í lok fundarins grein fyrir viðhorfum flokkanna til þeirra meginsjónarmiða sem fram koma í tillögunum um "Nýjan framhaldsskóla" og með hvaða hætti þeir munu beita sér í því máli í eða utan næstu ríkisstjórnar.
Dagskrá
Setning
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ
Nýr framhaldsskóli
Jón B. Stefánsson, formaður starfsnámsnefndar
Stutt innlegg og spurningar
Fulltrúar aðila vinnumarkaðarins, menntastofnanna og nemenda gera grein fyrir sínum viðhorfum og áherslum
Viðbrögð stjórnmálaflokka
Kjartan Eggertsson, Frjálslyndi flokkurinn
Kolbrún Halldórsdóttir, Vinstrihreyfingin grænt framboð
Kristrún Heimisdóttir, Samfylkingin
Margrét Sverrisdóttir, Íslandshreyfingin
Sigurður Kári Kristjánsson, Sjálfstæðisflokkurinn
Sæunn Stefánsdóttir, Framsóknarflokkurinn
Samantekt og ályktun Menntar
Ágúst H. Ingþórsson, forstöðumaður Rannsóknarþjónustu Háskóla Íslands
Fundarstjóri
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Til baka