Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
01. mars 2007 00:00

Vertu á verði!

Verðlagseftirlit ASÍ hefur sett á vefinn nýja reiknivél þar sem hægt er á einfaldan hátt að reikna út hvernig verð matvara á að breytast þegar virðisaukaskattur og vörugjöld lækka á morgun, þann 1. mars. Það þarf einungis að slá inn verð vörunnar í dálkinn fyrir 1.mars og reiknivélin gefur þá upplýsingar um hvernig vöruverðið á að breytast í samræmi við breytingar á lögum. Alþýðusambandið hvetur almenning til að fylgjast vel með breytingunum í sinni verslun og nota reiknivélina sem hjálpartæki til þess að átta sig á þeim verðbreytingum sem vænta má á mismunandi vöruflokkum.

Reiknivél



Til baka


Fréttalisti


Veikindaréttur

er sá réttu sem þú átt til launa ef þú getur ekki stundað vinnu...