01. maí 2007 14:48
1. maí fagnar vinnandi fólk um allan heim þeim mikla árangri sem verkalýðshreyfingin hefur náð ogheiðrar þá sem hafa lagt svo mikið af mörkum í nafni réttlætis, jafnréttis og mannlegrar reisnar.
Allir eiga rétt á mannsæmandi vinnu og mannsæmandi lífi.
Fyrir þær miljónir manna þar sem þessi réttindi eru ennþá ekki annað en fjarlægur draumur, mun staðfestu og sameiginlegt átak verkalýðshreyfingarinnar gera þennan draum að veruleika. Jafnframt mun verkalýðshreyfingin standa vörð um og viðhalda þessum réttindi fyrir það launafólk sem nýtur þeirra í dag.
Hin sögulega sameining alþjóðlegrar verkalýðshreyfingar, fyrir rétt um hálfu ári síðan, gefur okkur ný tæki og nýjan þrótt í baráttu okkar fyrir betri heimi. Við munum nýta okkur þessar aðstæður til hins ýtrasta og skila einingu og samtakamætti til þeirra sem á þurfa að halda. Jafnframt munum við breyta stefnu sem hins alþjóðlega efnahagskerfis, svo það þjóni hagsmunum fjöldans en ekki aðeins fárra útvalinna.
Skuldbinding okkar er óbreytt gagnvart því verkefni að skapa betri heim þar sem efnahagslegar framfarir þjóna félagslegum þörfum. Þar sem þeim sem búa við fátækt og á jaðri samfélagsins eru sköpuð skilyrði til að lifa mannsæmandi og gefandi lífi. Við höfnum hvers konar kúgun og misbeitingu, og lýsum yfir staðföstum vilja okkar til að halda áfram baráttu gegn öllum sem reyna að hagnast á örbirgð, mismunun og vonleysi.
Við stöndum sameinuð með öllum konum og körlum sem búa við brot á réttindum sínum sem launamenn og sem manneskjur og munum styðja þau eins og í okkar valdi stendur.
Við fordæmum alla þá sem hagnast á neyð annarra og munum halda áfram baráttunni gegn hömlulausri græðgi stórfyrirtækja.
Við munum halda áfram baráttunni fyrir betri heimi þar sem allir geta búið við frið og öryggi, lausir undan ofbeldi, stríði og eyðileggingu.
Þær kynslóðir sem nú lifa bera ábyrgð á framtíð plánetu okkar. Aðgerðir okkar munu skilja eftir varanleg áhrif á líf barna okkar og komandi kynslóða.
Við munum uppfylla þá grundvallar skyldu okkar að vinna að sjálfbærri þróun á sviði efnahags- og félagsmála og leggja okkar að mörkum til vinna gegn loftslagsbreytingum. Þá munum við einnig stuðla að aðgengi allra að heilsugæslu og menntun og að takast á við þær miklu áskoranir sem við stöndum frammi fyrir á hnattræna vísu.
Við viljum heim þar sem allar þjóðir heims geta unnið í sameiningu í þágu almannaheilla,að sanngirni og réttlæti verði komið á og viðhaldið í öllum samskiptum á hinum efnahagslega sviði. Þar sem engu þjóðríki er haldið fyrir utan og þar sem óskir og þrár allra karla, kvenna og barna um mannsæmandi líf eru uppfylltar.
Í nafni verkalýðshreyfingarinnar, sögu hennar og framtíðarsýnar, heitum við því að gera þessa drauma og vonir að veruleika.
Brussel, 1. maí 2007
Til baka