30. apríl 2007 16:01
16. þing Rafiðnaðarsamband Íslands var sett á Grand hótel föstudaginn 27. apríl sl.Þingið sátu 134 fulltrúar hinna 10 aðildarfélaga sambandsins. Guðmundur Gunnarsson var endurkjörinn formaður félagsins. Björn Ágúst Sigurjónsson varaformaður Helgi Jónsson ritari, Haukur Ágústsson gjaldkeri og Grétar Guðmundsson meðstjórnandi í framkvæmdastjórn. Samþykkt var að fjölga úr 13 í 15 í miðstjórn vegna mikillar fjölgunar í sambandinu og ákveðið að þau sæti færu til Félags símamanna og Félags tæknifólks.. Í setningaræðu Guðmundar benti hann m.a. á að samstarf og trúnaður milli samtaka atvinnurekenda og stéttarfélaganna gengdi mikilvægu hlutverki í þessum þjóðfélögum og hefði átt afgerandi þátt í hversu vel þessu þjóðfélög stæðu sig í samkeppni þjóðanna. Meðal annarra ræðumanna voru Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ, Gylfi Arnbjörnsson framkv.stjóri ASÍ sem hélt erindi um viðræður um endurskoðun á veikinda-, slysa- og örorkubótarétti og Ólafur Darri Andrason hagfræðingur ASÍ sem hélt áhugavert erindi um efnahagsástandið og kynnti nýja spá Hagdeildar ASÍ.
Sjá nánar á vef Rafiðnaðarsambands Íslands
Til baka