Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
30. apríl 2007 15:49

AFL - þriðja stærsta aðildarfélag ASÍ stofnað

Laugardaginn 28. apríl var stofnað nýtt sameinað verkalýðsfélag á Austurlandi. Kosið var um nafn og varð fyrir valinu AFL starfsgreinafélag. Hið nýja félag varð til við sameiningu Vökuls á Hornafirði, Verkalýðsfélags Reyðarfjarðar og AFLS starfsgreinasambands og er annað stærsta aðildarfélag Starfgreinasambandsins og þriðja stærsta félag ASÍ með hátt í 9.000 félaga. Á annað hundrað manns alls staðar að af Austurlandi mættu á stofnfundinn þar sem gengið var frá lögum og reglulgerðum, kjörið í trúnaðarstöður og nafn valið. Formaður hins nýja félags var kjörin Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, sem var formaður Vökuls Stéttarfélags á Hornafirði og Sigurður Hólm Freysson, sem var formaður Afls, starfsgreinafélags Austurlands, var kjörinn varaformaður. Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands flutti ávarp við upphaf fundarins og sagði meðal annars, að það væri alltaf ánægjuefni þegar leitað væri árangursríkra leiða til að bæta starfið í verkalýðshreyfingunni og kvaðst sannfærður um að stærri einingar væru vænlegri til árangurs í því umhverfi sem við nú hrærumst í Aðrir gestir á fundinum voru Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins, Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambandsins og Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður Verkalýðsfélagsins á Húsavík

Til baka


Fréttalisti


Desemberuppbót

er eingreiðsla sem atvinnurekendum ber samkvæmt...