Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
30. apríl 2007 15:36

Úthlutun úr Minningarsjóði Eðvarðs Sigurðssonar

Úthlutað hefur verið úr Minningarsjóði Eðvarðs Sigurðssonar fyrir árið 2007. Fræðimannsstyrk að þessu sinni hlýtur Katrín Ólafsdóttir til útgáfu á rannsókn hennar sem ber heitið „Er íslenskur vinnumarkaður sveigjanlegur?“. Styrkurinn er að fjárhæð kr. 500.000.

Styrkurinn er ætlaður til verkefna er varða íslenskt samfélag og málefni launafólks og til að efla rannsóknir og útgáfu á verkum sem varða sérstaklega íslenskt samfélag, vinnumarkaðinn, hagsmuni launafólks og starfsemi verkalýðshreyfingarinnar.

Í rannsókn Katrínar, sem er hluti af doktorsverkefni hennar er leitast við að svara spurningunni hvort íslenskur vinnumarkaður sé í raun sveigjanlegur. Katrín skoðar ýmsa þætti vinnumarkaðarins og umhverfis hans og er niðurstaðan sú að á flestum þeim mælikvörðum sem notaðir eru til að mæla sveigjanleika vinnumarkaða, þá teljist íslenskur vinnumarkaður sveigjanlegur.

 

Þá ákvað Minningarsjóðurinn að veita aukastyrk til Þjóðháttasafns Þjóðminjasafns Íslands vegna verkefnisins „Viðtöl við fiskvinnslufólk, þar sem það segir sjálft frá fiskvinnslu með sínum eigin orðum.“ Styrkurinn er að fjárhæð 200.000 kr. og er ætlaður til að hægt sé að ljúka því verkefni, en það hefur þegar verið fjármagnað af hluta til með styrk frá Eflingu, stéttarfélagi.



Til baka


Fréttalisti


Atvinnurekandi

einstaklingur eða fyrirtæki, sem hefur með höndum...