30. apríl 2007 15:25
Verð í flestum bakaríum lækkaði minna en sem nemur lækkun virðisaukaskatts milli janúar og mars samkvæmt verðmælingum sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í 21 bakaríi á höfuðborgarsvæðinu.
Lækkanir voru nokkuð misjafnar eftir bakaríum og algengt var að verð lækkaði niður á næsta jafna tug í stað nákvæmrar lækkunar til samræmis við lækkun virðisaukaskatts. Virðisaukaskattur lækkaði úr 14% í 7% á brauði og kökum í bakaríum þann 1. mars sl. og skv. því hefði verð til neytenda átt að lækka um 6,14%.
Algengast var að verð lækkaði milli 4 og 6 prósent en áberandi minnst verðlækkun varð í fjórum bakaríum, Café Konditori Cophenhagen við Suðurlandsbraut, Þórsbakaríi við Ármúla, Bernhöftsbakaríi við Bergstaðastræti og Kökuhorninu í Bæjarlind.
Verðmælingarnar verðlagseftirlits ASÍ voru gerðar í bakaríum í lok janúarmánaðar og aftur seinni partinn í marsmánuði. Rétt er að taka fram að ekki er um verðsamanburð á milli bakaría að ræða heldur er hér einungis lagt mat á verðbreytingar innan hvers bakarís fyrir sig. Við útreikninga á verðbreytingum er reiknuð út breyting á verði þriggja vöruflokka, brauði, rúnstykkjum ásamt sætabrauði og kökum.

Sjá nánar mynd í töfluformi
Til baka