Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
18. apríl 2007 14:36

Skráð atvinnuleysi 1,3%

Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun var skráð atvinnuleysi í mars 1,3%, þ.e. jafn hátt og í febrúar en örlítið minna en á sama tíma í fyrra. Lausum störfum fjölgaði talsvert í mars, eða um 111. Líta má á það sem vísbendingu um að atvinnuástandið muni ekki versna og jafnvel skána á næstunni eins og það gerir reyndar gjarnan á vormánuðum. ^Á hinn bóginn hafa borist fréttir af erfiðleikum sumstaðar á landsbyggðinni. Á Bakkafirði var t.d. fjórum síðustu starfsmönnunum í saltfiskverkuninni Gunnólfi sagt upp störfum í byrjun mars; og á Flateyri var níu konum í fiskvinnslunni Kambi á Flateyri sagt upp störfum í byrjun apríl.

Atvinnulausum á landinu öllu fækkaði í mars um 103 frá fyrra mánuði. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði atvinnulausum um 29 og á landsbyggðinni um 74. Síðastliðna 12 mánuði dró úr fjölda atvinnulausra alls staðar nema á Suðurnesjum, Suðurlandi og Vesturlandi. Miðað við tölur Vinnumálastofnunar virðist atvinnuástandið núna vera einna verst á Suðurnesjum. Nýskráningar starfsmanna frá nýju ríkjum evrópska efnahagssvæðisins voru 411 í mars. Auk þess voru gefin út 82 ný atvinnuleyfi til íbúa utan ESB. Samtals voru því veitt leyfi til /skráðir 493 erlendir starfsmenn samanborið við 550 í mars í fyrra.

 

 

 

 

Sjá nánar myndir



Til baka


Fréttalisti


Félagsleg undirboð

Félagsleg undirboð háttsemi erlendra fyrirtækja sem lýsir sér einkum í því að starfsmönnum þeirra eru ekki greidd laun í samræmi við lög og kjarasamninga í gistiríki, þeim er ekki tryggður sá aðbúnaður og öryggi á vinnustað sem lög gera kröfu um og svikist er um að greiða lög- og samningsbundin gjöld af þeim til stofnana samfélagsins, þ.m.t. stéttarfélaga. Með þessu er brotið bæði á hagsmunum viðkomanda starfsmanna og grafið undan stofnunum samfélagsins, tiltrú almennings á þeim og vilja þeirra til að fjármagna þær með sköttum og öðrum gjöldum.