Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
17. apríl 2007 14:56

Verð í verslunum 10-11 lækkar um 6,1%

Verðlagseftirlit ASÍ sendi í gær frá sér frétt um verðbreytingar í verslunum í kjölfar lækkunar á virðisaukaskatti og vörugjöldum á matvælum. Forsvarsmenn verslunarkeðjunnar 10-11 hafa gert athugasemd við frétt ASÍ og talið að hún gæfi ekki rétta mynd af verðbreytingum verslunarinnar. Af því tilefni hefur verðlagseftirlitið farið sérstaklega yfir þær kannanir sem gerðar voru í verslun 10-11 í febrúar og mars.

Í ljós kom að í verslunum 10-11 voru mjög fáar vörur á bak við mælingu ASÍ í sumum vöruflokkum, sérstaklega í vöruflokknum sykur, súkkulaði og sætindi. Í þeim tilfellum sem vara er ekki til í verslun þá er öðrum vörum í sama vöruflokki gefið aukið vægi, líkt og gert er í ýmsum öðrum viðurkenndum könnunum.

Þar sem mjög fáar vörur voru að baki mælingum á sælgæti þá kann þessi aðferafræði að gefa villandi mynd af heildarverðbreytingum í verslunum 10-11. Ef þeim vörum er alveg sleppt, þá kemur í ljós að heildarverðbreyting í 10-11 milli mánaðanna febrúar og mars var 6,1%. Á myndinni hér fyrir neðan má sjá samanburð á verðbreytingum í 10-11 og öðrum verslunarkeðjum

17040710-11

 



Til baka