Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
17. apríl 2007 14:50

Treystum velferðina

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands ákvað á fundi sínum 11. apríl sl. að yfirskrift 1. maí aðgerðanna í ár verði VERJUM VELFERÐINA. Í greinargerð sem fylgir með þessari ákvörðun miðstjórnar segir m.a.:

Staðreyndir sýna að samfélög sem byggja á velferðarhugsjón verkalýðshreyfingarinnar hafa skapað íbúum sínum mesta almenna velferð og lífsgæði meðal þjóða heims.

Norræn velferðarsamfélög hafa þannig verið meðal þeirra þjóða sem eru best búin undir framtíðina og þá samkeppni sem fylgir hnattvæðingunni, bæði þeim áskorunum og tækifærum sem henni fylgja.

Niðurstaðan er því skýr. Samfélög sem byggja á öflugu og virku velferðarkerfi, góðri menntun fyrir alla, jöfnuði og jafnrétti og traustum réttindum launafólks er sá grunnur sem byggja þarf á til að takast á við og nýta þau tækifæri sem hnattvæðingin gefur. Velferðin borgar sig, sama hvernig á það er litið.

Sjá greinargerð í heild sinni



Til baka


Fréttalisti


Atvinnuleyfi

eru leyfi sem gefin eru út til atvinnurekanda...