Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
16. apríl 2007 15:03

Veitingahúsin hafa enn ekki lækkað

Verðbólga mældist 5,3% í mars og hefur hækkað um 0,6% frá því í febrúarmánuði. Enn eru það hækkanir á markaðsverði húsnæðis sem leiða hækkunina en kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 2,5% milli mánaða. Þá hækkaði verð á fötum og skóm einnig mikið frá því í febrúar eða um 5,5% sem rekja má til útsöluloka á þessum vörum í verslunum.

Verð á mat– og drykkjarvörum lækkaði um 0,9% milli mánaða og má ætla að hér sé að skila sér hluti þeirra lækkana sem varð á vörugjöldum þann 1. mars þegar vörugjöld voru afnumin af matvörum eins og gosi, söfum, kaffi, ís o.fl. Gert var ráð fyrir að afnám vörugjalda skilaði 1,3% verðlækkun á mat- og drykkjarvörum en ætla má að sú lækkun geti tekið 2-3 mánuði að skila sér að fullu.

 

Breytingar á virðisaukaskatti sem gerðar voru þann 1 mars sl. náðu einnig til fleiri liða vísitölunnar og ber þar helst að nefna lækkun á virðisaukaskatti á veitingahúsum. Áætlað var að sú breyting hefði tæplega 9% áhrif til lækkunar á veitingarlið vísitölunnar. Við síðustu mælingu á vísitölu neysluverðs í mars hafði verð á veitingahúsum einungis lækkað um 3,2% frá því í febrúar. Vonir stóðu því til þess að veitingahús hefðu í kjölfarið lækkað hjá sér verð og skilað lækkun á virðisaukaskattinum til neytenda. Sú er hins vegar ekki raunin því veitingarliður vísitölunnar er nánast óbreyttur frá því í marsmánauði og því ljóst að veitingamenn eiga flestir enn eftir að skila neytendum þeirri lækkun sem þeim ber.

 



Til baka


Fréttalisti


Atvinnurekandi

einstaklingur eða fyrirtæki, sem hefur með höndum...