23. mars 2007 09:26
Einn liður í þeim aðgerðum sem ríkisstjórnin boðaði til lækkunar á matvöruverði sl. haust voru lækkanir á tollum og aukin markaðsaðgangur gagnvart helstu viðskiptalöndum. Útfærsla á þessum hluta aðgerðanna var lengst af óljós og lá raunar ekki fyrir fyrr en breytingarnar tóku gildi um sl. mánaðarmót. Í meginatriðum má segja að breytingarnar séu þríþættar. Í fyrsta lagi lækka almennir tollar á kjöti sem flutt er inn frá löndum Evrópusambandsins um 40%. Í öðru lagi aukast tollkvótar á kjöti, ostum og kartöflum frá Evrópusambandinu. Kvótarnir eru líkt og verið hefur boðnir út og seldir hæstbjóðanda en til þess að aukning á tollkvótum skili sér í lægra vöruverði hefði verið nauðsynlegt að fara aðra leiðir við úthlutun.Í þriðja lagi eru að ný settir á almennir tollar á algengar grænmetistegundir sem fluttar eru inn frá löndum utan Evrópusambandsins en innflutningur frá ESB verður áfram tollfrjáls. Verðlagseftirlit ASÍ hefur tekið saman stutt yfirlit yfir þessar helstu breytingar.
Sjá nánar samantekt
Til baka