Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
12. apríl 2007 09:23

Könnun á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna

Í dag kom út skýrsla fjármálaráðuneytisins um starfsumhverfi ríkisstarfsmanna. Helstu niðurstöður hennar eru þær að viðhorf ríkisstarfsmanna til margra þátta í starfsumhverfinu hafi lítið breyst frá fyrri könnun sem framkvæmd var árið 1998.

Það á t.a.m. við um afstöðu starfsmanna til stjórnunar, ráðninga, vinnuaðstöðu, vinnuálags, streitu og jafnvægis milli vinnu og einkalífs. Einnig mælist starfsánægja, starfsandi og hollusta ríkisstarfsmanna svipuð. Á tilteknum stjórnunarsviðum má þó greina jákvæðari afstöðu starfsmanna nú en 1998. Þannig hefur hlutfall þeirra sem telja að upplýsingamiðlun innan sinnar stofnunar sé í góðu lagi hækkað. Vísbending er um að fleiri telji vinnubrögð til fyrirmyndar og að viðskiptavinir séu ánægðir með þjónustu stofnunar. Þetta mat er þó afar misjafnt eftir því hvar fólk starfar. Sama er að segja um hlutfall þeirra sem telja að næsti yfirmaður leiðbeini og gagnrýni á uppbyggjandi hátt, leyti til starfsmanna áður en mikilvægar ákvarðanir er teknar og takist vel að leysa þau starfsmannavandamál sem upp koma. Afar misjafnt er eftir stofnunum hver afstaða starfsmanna er til stjórnunar og starfsumhverfis. Það að stofnun framfylgi aðferðum mannauðsstjórnunar virðist hafa jákvæð áhrif á viðhorf

ríkisstarfsmanna.

 

Skýrslan í heild sem og eldri skýrslur



Til baka


Fréttalisti


Atvinnusjúkdómur

er sjúkdómur, sem á beint eða óbeint rætur...