12. apríl 2007 08:49
Félagsdómur í Danmörku dæmdi þann 13. mars s.l. danska útgerðarfélagið DFDS til greiðslu fimm milljóna krónar sektar fyrir að hafa skipt sér af því í hvaða stéttarfélagi starfsmenn þess tilheyrðu.
Málavextir eru þeir að tvö stéttarfélög sjómanna, Sömændenes Forbund (SF) og Dansk Metal (DM),hafa gilda kjarasamninga um sömu störf um borð í dönskum farskipum. Samningur DM bíður upp á meiri sveigjanleika við skipulag vakta um borð en samningur SF gerir. Af þessum ástæðum réði DFDS nánast eingöngu meðlimi í DM til starfa og mæltist til þess við félagsmenn SF að þeir skiptu um stéttarfélag og var það staðfest við vitnaleiðslur fyrir dómi. DFDS viðurkenndi ekki slíkt athæfi en viðurkenndi að það kysi af rekstrarlegum ástæðum fremur að ráða meðlimi DM en SF. Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu að þegar tveir kjarasamningar taki til sömu starfa hafi atvinnurekandi ekki neitt val á milli þeirra. Hann komst síðan að þeirri niðurstöðu að DFDS hefði gerst brotlegt við kjarasamning sinn við SF með því að bjóða meðlimum þess félags ráðningu á DM kjörum. Rétturinn hafnaði og með öllu rökum DFDS um að rekstrarlegar ástæður gætu réttlætt athæfi þeirra og dæmdi atvinnurekandann til greiðslu sektar að fjárhæð 500.000.- danskar krónur.
Þessi dómur byggir á sömu meginforsendum og dómar Félagsdóms hér á landi þegar tekist hefur verið á um rétt launafólks til þess að öðrum skilyrðum uppfylltum, að velja sér aðild að stéttarfélagi séu í gildi tveir kjarasamningar um sömu störf.
Dómurinn í heild sinni Til baka