15. febrúar 2007 15:54
Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun var skráð atvinnuleysi í janúar 1,3%. Þrátt fyrir örlitla hækkun frá fyrra mánuði þá er þetta nokkuð minna atvinnuleysi en á sama tíma í fyrra. Í öllum helstu viðmiðunarlöndum er atvinnuleysi talsvert meira en hér á landi.
Í aðildarríkjum Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) hefur um nokkurt skeið ríkttímabil hagvaxtar með lítilli verðbólgu. Í greiningu OECD frá í desember sl. kemur fram að Í Bandaríkjunum sé nú farið að gæta vissra einkenna þenslu en að á evrusvæðinu sé enn fyrir hendi slaki.
Takturinn í atvinnulífinu hér á landi svipar þannig um margt til ástandsins í Bandaríkjunum, þ.e. hann einkennist af spennu á vinnumarkaði ásamt tiltölulega hárri verðbólgu og háum vöxtum. Í Danmörku og Noregi er atvinnuleysi reyndar einnig lítið en á hinn bóginn eru verðbólga og vextir þar lágir öfugt við á Íslandi.
Vísbendingar eru um að eitthvað sé að draga úr eftirspurn eftir erlendu vinnuafli. Samtals voru skráðir /veitt leyfi til 377 starfsmanna utan gömlu ESB-ríkjanna í janúar miðað við 405 í mánuðinum á undan og 416 á sama tíma í fyrra. Líklegt er að á síðasta ári hafi um 17 þúsund erlendir ríkisborgarar starfað á Íslenskum vinnumarkaði.
Skráð atvinnuleysi
Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun var skráð atvinnuleysi í janúar 1,3%, þ.e. heldur meira en í mánuðinum á undan. Fjöldi skráðra atvinnulausra í lok desember var 2.157 og fjölgaði um 47 milli mánaða en fækkaði um 563 milli ára. Atvinnuleysi kvenna jókst meira en meðal karla. Atvinnuástandið breytist yfirleitt lítið frá janúar til febrúar. Atvinnuleysishlutfallið er talsvert hærra á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Mest jókst fjöldi atvinnulausra milli mánaða á Suðurlandi, Suðurnesjum, Norðurlandi vestra og á Vesturlandi
Alþjóðlegur samanburður
Í löndum Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) hefur um nokkurt skeið ríkttímabil hagvaxtar með lítilli verðbólgu. Í greiningu stofnunarinnar frá í desember sl. kemur fram að fátt bendi til ofhitnunar í þessum löndum. Í Bandaríkjunum og Japan kunni eftirspurn að vísu vera nokkuð yfir langtímajafnvægi en að á evrusvæðinu sé enn fyrir hendi nokkur slaki. OECD spáir mjúkri aðlögun í Bandaríkjunum og Japan en að uppsveifla gæti verið framundan á evrusvæðinu.

Erlendir starfsmenn á Íslandi
Vísbendingar eru um að eitthvað sé að draga úr eftirspurn eftir erlendu vinnuafli. Í janúar voru skráðir hjá Vinnumálastofnun 349 starfsmenn frá nýjum ESB-ríkjum sem er örlítil fækkun frá mánuðinum á undan. Þá voru aðeins veitt 28 ný atvinnuleyfi til starfsmanna utan ESB-ríkja en 48 í mánuðinum á undan. Samtals voru því skráðir /veitt leyfi til 377 starfsmanna utan gömlu ESB-ríkjanna í janúar miðað við 405 í mánuðinum á undan og 416 á sama tíma í fyrra. Miðað við upplýsingar frá Vinnumálastofnun virðist mega áætla að á síðasta ári hafi um 17 þúsund erlendir ríkisborgarar starfað á Íslenskum vinnumarkaði.

Ýmsar viðbótarupplýsingar um atvinnuástandið


Til baka