12. mars 2007 21:26
Hagstofa Íslands birti í morgun fyrstu mælingu sína á vístölu neysluverðs eftir að breytingar á lögum um virðisaukaskatt og vörugjöld tóku gildi þann 1. mars sl. Verðbólga mældist 5,9% í mars og lækkaði vísitala neysluverðs um 0,34% frá fyrra mánuði. Mest áhrif til lækkunar á vísitölunni hefur lækkun á mat- og drykkjarvörum sem lækkuðu um 7,4% frá því í febrúarmánuði. Sú verðlækkun er í takt við áætluð áhrif af lækkun virðisaukaskatts og skv. þessum fyrstu vísbendingum hefur matvöruverslunin staðið sig vel fram að þessu í að skila lækkuninni út í verðlag.
Aðra sögu er að segja af lækkun á veitingarhúsum en virðisaukaskattur lækkaði einnig hjá þeim um sl. mánaðarmót. Veitingaliður vísitölunnar lækkaði einungis um 3,2% frá því febrúar en áætlað var að breytingin hefði tæplega 9% áhrif til lækkunar á þann lið. Það er því ljóst að talsvert vantar upp á að veitingahús og matsölustaðir skili tilætlaðri lækkun til neytenda.
Breyting á virðisaukaskatti hafði einnig áhrif á verð ýmissa minni liða í vístölunni og ber þar helst að nefna veggjöld í Hvalfjarðargöngin, hljómdiska, afnotagjöld útvarps og sjónvarpsstöðva og verð á blöðum og tímaritum en þessir liðir lækkuðu að mestu leiti í takt við áætluð áhrif. Virðisaukaskattur á bókum var einnig lækkaður og gerðu áætlanir ráð fyrir 6,1% lækkun á þeim en skv. vísitölu neysluverðs nú hafði verð á bókum einungis lækkaðu um 4% milli mánaða. Sömu sögu má segja af verði á gistingu sem áætlað var að myndi lækka um 5,6% vegna virðisaukaskattsbreytinganna en skv. vísitölunni lækkaði sá liður um 3% frá því í febrúar.
Virðisaukaskattur á húshitun lækkaði einnig þann 1. mars sem lækkaði húshitunarkostnað um 5,6% frá því í febrúar en á móti kemur að raforkuverð hækkaði um 2% á sama tíma sem leiðir til þess að samanlögð áhrif til lækkunar á rafmagns og hitakostanað sem áætluð höfðu verið 2,8% eru einungis um 1%.
Mest áhrif á móti lækkuninni nú hafa útsölulok á fötum og sem hækkuðu um 12,3% frá því í ferbrúar. Auk þess hækkaði húsnæðisliður vístölunnar um ríflega 1% frá fyrra mánuði.
Til baka