Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
20. febrúar 2007 21:24

Breytingar á virðisaukaskatti og vörugjöldum þann 1. mars 2007

Þann 1. mars n.k. taka gildi breytingar á lögum um virðisaukaskatt og vörugjöld sem fyrst og fremst er ætlað að lækka matvöruverð hér á landi og færa það nær því sem gerist í nágrannalöndum okkar. Breytingarnar ná þó einnig til fleiri þátta í heimilishaldinu en matarins. Verð á veitingarhúsum, hótelum og gistisheimilum lækkar einnig í kjölfar breytinga á virðisaukaskattsreglum þessara aðila. Verð á bókum, hljóðbókum, blöðum og tímaritum lækkar um 6% þegar og verð á hljómdiskum lækkar um 14%. Þá má nefna að heitt vatn og rafmagn sem notað er til húshitunar lækkar einnig um 6% og hið sama má

Verðlagseftirlit ASÍ hefur tekið saman upplýsingar um þær breytingar sem eiga sér stað um næstu mánaðarmót og sett upp dæmi um af því hvernig verð til neytenda á vörum og þjónustu mun breytast í kjölfar þeirra. Neytendur eru hvattir til að fylgjast vel með verði vara og þjónustu á næstu vikum og mánuðum og ganga úr skugga um að sú skattalækkun sem fellst í þessum aðgerðum skili sér í til heimilanna í landinu. 

Samantekt og dæmi í pdf formati



Til baka