12. febrúar 2007 11:16
Verðbólga mældist 7,4% í febrúar og hækkaði vísitala neysluverðs um 0,41% frá því í janúarmánuði. Mestu áhrif til hækkunar á vísitölunni hefur húsnæðisliður vísitölunnar sem hækkaði um 1,8% frá fyrra mánuði. Rekja má þá hækkun að mestum hluta til hækkunar á markaðsverði húsnæðis en einnig til hækkunar á vöxtum og viðhaldskostnaði. Útsölur á fötum og skóm eru víða enn í verslunum og hefur það nokkur áhrif til lækkunar á vísitölunni, en sá liður lækkaði um 4,1% milli mánaða.
Verðlag á matar- og drykkjarvörum, sem um þessar mundir er undir mikilli smásjá almennings, breyttist lítið á milli mánaða, hækkaði um 0,2% frá fyrra mánuði. Sé skoðuð nánari sundurliðun má sjá að verð á búvörum öðrum en grænmeti lækkuðu um 1% milli mánaða og verð á innfluttum matvörum lækkaði sömuleiðis um 0,7% enda hefur gengi krónunnar styrkst nokkuð á sl. vikum. Verðlag á grænmeti hækkaði hins vegar um 1,2% frá því í janúar og verð á öðrum innlendum mat- og drykkjarvörum hækkaði um 1,8%.
Þessi mæling á vísitölu neysluverðs er sú síðasta áður en breytingar á lögum um virðisaukaskatt, vörugjöld og tolla taka gildi um næstu mánaðarmót. Sú breyting mun hafa mest áhrif á verðlag á mat- og drykkjarvörum ásamt verði á veitingarhúsum og gististöðum en breytingarnar hafa einnig áhrif á verðlag á bókum, tímaritum, geisladiskum, áskrifta af sjónvarpsstöðvum og kostnað af húshitun.
Til baka