Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
30. janúar 2007 09:39

Atvinnuástandið í desember

1,2% (2.110 manns atvinnulausir), en samkvæmt upplýsingum úr vinnumarkaðaskönnun Hagstofu Íslands mældist atvinnuleysi hins vegar 2,5% á fjórða ársfjórðungi 2006 (4.300 manns atvinnulausir).

Þar sem aðferðafræði stofnananna tveggja við mat á atvinnuleysi er ekki sú sama er ekki við því að búast að tölum frá þeim beri fullkomlega saman. Þó má ætla að mun hærri atvinnuleysistölur Hagstofunnar en Vinnumálastofnunar sé vísbending um að talsverður hluti atvinnulausra hafi annað hvort ekki rétt til atvinnuleysisbóta eða kjósi að skrá sig ekki á atvinnuleysisskrá.

 

Tölur Vinnumálastofnunar um fjölda atvinnulausra miðast við þá sem skráð hafa sig hjá stofnuninni og sótt um atvinnuleysisbætur; tölur Hagstofunnar miðast við könnun þar sem fólk er talið atvinnulaust ef það segist vilja og geta unnið en fær ekki vinnu.

Vísbendingar Vinnumálastofnunar (skráð atvinnuleysi) /desember 2006

Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun var skráð atvinnuleysi í desember 1,2%, þ.e. heldur meira en í mánuðinum á undan. Fjöldi skráðra atvinnulausra í lok desember var 2.110 og fjölgaði um 189 milli mánaða en fækkaði um 517 milli ára.

Atvinnuástandið versnar yfirleitt frá desember til janúar, m.a. vegna árstíðarsveiflu. Laus störf í lok desember 2006 voru 218 og fækkaði um 71 milli mánaða. Fækkun var á lausum störfum um 26 á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um 45.

Vinnumálastofnun áætlar að um 17 þúsund erlendir starfsmenn séu starfandi á íslenskum vinnumarkaði um þessar mundir -- um 6.000 þeirra voru komnir til landsins fyrir árið 2006; af þeim sem bættust við á síðasta ári komu líklega um 2.000 frá gömlum aðildarríkjum ESB, 3.999 voru skráðir frá nýjum aðildarríkjum ESB, 2.849 voru skráðir frá löndum utan ESB og 814 voru skráðir virkir á vegum starfsmannaleiga; þar að auki áætlar Vinnumálastofnun að um 1.800 starfsmenn frá nýjum ríkjum ESB hafi verið óskráðir á vinnumarkaðnum í fyrra.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Vísbendingar Hagstofu Íslands (mælt atvinnuleysi) /4. ársfj. 2006

Samkvæmt upplýsingum úr vinnumarkaðaskönnun Hagstofu Íslands var fjöldi á vinnumarkaði 174.300manns á fjórða ársfjórðungi 2006 og fjölgaði um 8.400 milli ára. Fjöldi þeirra sem var á vinnumarkaði en hafði ekki starf var 4.300 manns eða 2,5% vinnuaflsins (örlítil lækkun frá í fyrra). Atvinnuleysishlutfallið mældist það sama hjá körlum og konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 7,0%.

 

 

Sjá nánar mynd og töflu í excel formati



Til baka


Fréttalisti


Einelti

er skilgreint sem ámælisverð eða síendurtekin ótilhlýðileg...